Sex vel staðsett 25 fermetra hús á Suðurlandi!


Sex rúmgóð 25 m2 sumarhús til leigu rétt undir Heklurótum á suðurlandi. Aðeins um 20-25 mínútna keyrsla norðaustur frá Hellu. Mikið af náttúruperlum í kring, Hekla, Landmannalaugar, Rauðufossar, Fossabrekkur, Þjófafoss, Hjálparfoss og fleira.

Húsin eru umkringd stórbrotinni náttúru. Það er nánast allt til alls í húsunum. Þau eru í raun uppbyggð eins og stúdíó íbúð. Vel útbúið eldhús, með litlum ísskáp, tveggja hellu eldavél, örbylgjuofn, brauðrist, kaffivél og nánast öll þau áhöld sem þarf til eldunar. Nóg af kaffi og te fyrir alla gesti.

Uppábúið rúm með góðum dúnsængum og koddum. Rúmið er 160×200 cm og rúmast vel fyrir tvo gesti. Sjónvarp er til staðar að stærð 43″ eða 50″, fer eftir húsi, þar sem hægt er að horfa á Netflix, YouTube eða RÚV. Tveir þæginlegir armstólar sem gott er að sitja í og slaka á. Möguleiki er að stækka eldhúsborðið ef gestir vilja borða saman eða fá sér kaffibolla saman.

Sér baðherbergi í hverju húsi með góðri sturtu. Handklæði eru innifalin. Hand- og baðsápa eru til staðar.

Innritun er eftir klukkan 16:00.
Útritun er fyrir klukkan 11:00.

Afternoon Cottages, Svínhagi SH-16, Rangárþing Ytra, Hella (Staðsetning)

BÓKAÐU HÉR!

Á heimasíðunni okkar færð þú betri verð en á öðrum bókunarsíðum.

Davíð Haukur UnnsteinssonGestur


Umsagnir Gesta